Þórbergur Ernir Hlynsson lauk keppni í dag í -110 kg flokki með sóma. Þórbergur náði frábærum árangri þar sem hann bætti meðal annars Íslandsmet fullorðinna í snörun um 3 kg er hann lyfti 148 kg í þriðju lyftu. Áður hafði hann misst fyrstu lyftu við 143 kg en fór svo létt með sömu þyngd í annarri lyftu. Hann byrjaði örugglega í jafnhendingu á 172 kg og fór þaðan í 178 kg sem fóru upp. Á þessum tímapunkti var hann búinn að bæta Íslandsmetið fullorðinna í snörun í -110 kg flokki um 3 kg sem og Íslandsmet fullorðinna í samanlögðun árangri í -110 kg flokki um 1 kg eða 326 kg. Síðasta lyftan við 184 kg var fyrir nýju Íslandsmeti í jafnhendingu en því miður fór hún ekki upp.
Frábær árangur hjá Þórbergi sem er á góðu skriði fyrir heimsmeistaramótið sem fer fram í Kína mánaðarmótin október/nóvember.
Þær stöllur Emilía Nótt Davíðsdóttir og Steindís Elín Magnúsdóttir stigu á svið í morgun á Evrópumeistaramóti U20 og U23 sem fram fer í Albaníu.
Báðar kepptu þær í -69 kg flokki í B hóp í U20.
Steindís Elín byrjaði vel og lyfti 68 kg í fyrstu tilraun í snörun. Þar á eftir fylgdu tvær ógildar tilraunir við 71 kg. Hún opnaði í 86 kg í jafnhendingu sem fór létt upp og þyngdi svo í 90 kg í annarri tilraun sem fór líka upp. Þriðja lyftan hennar með 94 kg fór því miður ekki upp. Niðurstaðan var 158 kg samanlagt, 10. sæti af 13. keppendum. Hún var aðeins frá sínu besta en hennar þriðji besti árangur. Mikilvæg reynsla fyrir hana á stórmóti.
Mynd: All Things GymMynd: All Things Gym
Emilía Nótt sem einnig var í sama hóp hóf snörun á 74 kg sem fóru upp. Því næst þyngdi hún og fór upp í 77 kg, sem var þá einu kg meira en Íslandsmet hennar í U20 og U23. Lyftan fór ekki upp en hún reyndi aftur og í þriðju tilraun tókst það. Emilía lyfti því 77 kg og setti þar með nýtt Íslandsmet í U20 og U23 aldursflokkunum. Hún byrjaði svo þungt í jafnhendingu og reif 100 kg auðveldlega upp. Þar á eftir fylgdu tvær ógildar tilraunir við 104 kg, sem hefði einnig verið bæting um eitt kg á hennar eigin Íslandsmeti. Niðurstaðan var því 177 kg samanlagt sem er aðeins tveimur kg frá hennar besta árangri. Hún endaði í 5. sæti af 13. keppendum.
Evrópumeistaramót U20 og U23 í ólympískum lyftingum fer fram í Durrës í Albaníu dagana 12. til 19. október. Ísland á þrjá keppendur á mótinu, þau Þórberg Erni Hlynsson, Emilíu Nótt Davíðsdóttur og Steindísi Elínu Magnúsdóttur, sem öll hafa náð góðum árangri á innlendum og erlendum vettvangi.
Þórbergur Ernir Hlynsson keppir í U23, -110 kg
Þórbergur Ernir Hlynsson, fæddur árið 2005, keppir í -110 kg flokki karla í U23 mánudaginn 19. október. Hann hefur um árabil verið meðal fremstu ungu lyftingamanna Íslands.
Þórbergur varð Norðurlandameistari U20 árið 2025 og hefur einnig unnið til sigra á Smáþjóðamótinu og Íslandsmeistaramóti unglinga.
Á Íslandsmeistaramótinu í febrúar 2026 lyfti Þórbergur 145 kg í snörun og 180 kg í jafnhendingu, samtals 325 kg. Það er jafnframt hans besti skráði árangur í samanlögðu. Hann hefur einnig sett fjölmörg Íslandsmet á ferlinum.
Photo: Per Wiklund
Emilía Nótt Davíðsdóttir keppir í U20, -69 kg
Emilía Nótt Davíðsdóttir, fædd árið 2006, keppir í -69 kg flokki kvenna í U20 föstudaginn 16. október. Hún hefur sýnt stöðugar framfarir undanfarin ár og er nú þegar komin með reynslu af stórmótum á alþjóðavettvangi.
Emilía varð Íslandsmeistari unglinga árið 2025 og hefur náð góðum árangri á innlendum mótum. Hún tók þátt í heimsmeistaramóti U20 á árinu, þar sem hún lyfti 169 kg samanlagt, og hefur jafnframt keppt á Norðurlandamóti U20 og U17.
Á haustmóti LSÍ í september 2026 setti Emilía persónulegt met þegar hún lyfti 76 kg í snörun og 103 kg í jafnhendingu, samtals 179 kg. Sá árangur sýnir þær framfarir sem hún hefur náð.
Steindís Elín Magnúsdóttir keppir í U20, -69 kg
Steindís Elín Magnúsdóttir, fædd árið 2008, keppir í -69 kg flokki kvenna í U20 föstudaginn 16. október. Hún hefur tekið þátt í alþjóðlegum unglingamótum undanfarin ár og öðlast mikilvæga reynslu í keppni við sterka andstæðinga.
Steindís keppti á Evrópumeistaramóti U17 árið 2025 og hafnaði þar í 12. sæti. Hún hefur einnig keppt á Norðurlandamóti U20 og U17 og náð góðum árangri á íslenskum meistaramótum.
Á Norðurlandamóti U20 og U17 árið 2025 lyfti Steindís 64 kg í snörun og 84 kg í jafnhendingu, samtals 148 kg. Besti skráði árangur hennar í samanlögðu er hins vegar 167 kg, sem hún náði á Sumarmóti LSÍ í maí 2026.
Evrópumeistaramótið í Albaníu verður því mikilvægt tækifæri fyrir Steindísi til að halda áfram að þróast sem keppandi og bæta við reynslu sína á alþjóðavettvangi.
Þrír íslenskir keppendur tóku þátt á heimsmeistaramóti öldunga í ólympískum lyftingum (WMC) sem fór fram í Aþenu í Grikklandi í september. Uppskeran var frábær, einn heimsmeistaratitill, eitt silfur og fjöldi meta.
Anna Guðrún heimsmeistari í annað sinn
Anna Guðrún Halldórsdóttir varð heimsmeistari í -86 kg flokki kvenna 55–59 ára (W55). Hún lyfti samtals 135 kg, 55 kg í snörun og 80 kg í jafnhendingu.
Í snörun opnaði Anna Guðrún á 53 kg. Hún missti 55 kg í annarri tilraun en kláraði þá þyngd í þeirri þriðju. Í jafnhendingu tryggði hún sér titilinn strax í fyrstu lyftu með 73 kg og bætti svo við 76 kg. Í síðustu lyftu reyndi hún við 80 kg, sem er nýtt Evrópumet og 1 kg betra en fyrra met hennar, 79 kg. Lyftan var gild á þremur hvítum ljósum. Hún setti einnig met í jafnhendingu í flokkum 50 og 55 ára.
Anna Guðrún kom inn í mótið sem sigurstranglegust. Hún varð heimsmeistari árið 2024 og er ríkjandi Evrópumeistari í sínum flokki. Þrátt fyrir nokkuð stuttan keppnisferil á hún nú tvo heimsmeistaratitla, eitt silfur á HM, þrjá Evrópumeistaratitla og sex Evrópumet í tveimur þyngdarflokkum.
Silfur og metaregn hjá Hrund
Hrund Scheving keppti í -77 kg flokki kvenna 45–49 ára (W45) og náði sér í silfur. Hún átti sex gildar lyftur: 65, 69 og 71 kg í snörun og 85, 88 og 90 kg í jafnhendingu, eða 161 kg samtals. Með 71 kg snörun, 90 kg jafnhendingu og 161 kg samanlagt setti hún met í flokkum 35, 40 og 45 ára.
Steinunn í keppni í flokki 60 ára
Steinunn Sveinsdóttir keppti í -86 kg flokki kvenna 60–64 ára (W60). Hún lyfti 29 kg í fyrstu tilraun í snörun en næstu tvær tilraunir voru ekki gildar. Hún náði því miður ekki gildri lyftu í jafnhendingu og fékk því ekki skráðan samanlagðan árangur.
Lyftingasamband Íslands óskar keppendum innilega til hamingju með árangurinn!
Nýir þyngdarflokkar IWF tóku gildi 1. ágúst síðastliðinn þrátt fyrir þyngdarflokkabreytingu sem átti sér stað 1. júní 2025.
Áfram eru keppnisflokkarnir átta en dreifingin er aðeins önnur en í flokkunum 2025, í kvennaflokki eru 3 nýir þyngdarflokkar og í karlaflokki eru 4 nýir þyngdarflokkar, í U17 og U15 eru 4 nýir þyngdarflokkar kvenna og 6 þyngdarflokkar karla. Í eldri flokkum er ekki gerð breyting á metum, heldur standa eldri met. Þetta er svipuð aðferð og önnur lönd og sambönd eru að beyta. Í nýjum flokkum byrja mót frá 1. ágúst að telja og sömu reiknisformúlur eru notaðar við áætlun á stöðluðum metum líkt og áður. Ekki er settur staðall í unglinga eða öldungaflokki.
Konur Senior/Opin flokkur, U20 and U23 og öldungaflokkar: -49 kg Nýr flokkur – Nýr staðall í opnum flokk (72/89/161) -53 kg Gamall flokkur – engin breyting -57 kg Nýr flokkur – Nýr staðall í opnum flokk (84/104/188) -61 kg Nýr flokkur – Nýr staðall í opnum flokk (88/107/195) -69 kg Gamall flokkur – engin breyting -77 kg Gamall flokkur – engin breyting -86 kg Gamall flokkur – engin breyting +86 kg Gamall flokkur – engin breyting
Karlar Senior/Opin flokkur, U20 and U23 og öldungaflokkar: -60 kg Gamall flokkur – engin breyting -65 kg Gamall flokkur – engin breyting -70 kg Nýr flokkur – Nýr staðall í opnum flokk (118/145/263) -75 kg Nýr flokkur – Nýr staðall í opnum flokk (123/151/274) -85 kg Nýr flokkur – Nýr staðall í opnum flokk (131/161/292) -95 kg Nýr flokkur – Nýr staðall í opnum flokk (136/169/305) -110 kg Gamall flokkur – engin breyting +110 kg Gamall flokkur – engin breyting
Konur U17 and U15 -45 kg Nýr flokkur – enginn staðall -49 kg Nýr flokkur – enginn staðall -53 kg Gamall flokkur – engin breyting -57 kg Nýr flokkur – enginn staðall -61 kg Nýr flokkur – enginn staðall -69 kg Gamall flokkur – engin breyting -77 kg Gamall flokkur – engin breyting +77 kg Gamall flokkur – engin breyting
Karlar U17 and U15 -55 kg Nýr flokkur – enginn staðall -60 kg Gamall flokkur – engin breyting -65 kg Gamall flokkur – engin breyting -70 kg Nýr flokkur – enginn staðall -75 kg Nýr flokkur – enginn staðall -85 kg Nýr flokkur – enginn staðall -95 kg Nýr flokkur – enginn staðall +95 kg Nýr flokkur – enginn staðall
Athygli er vakin á því að á Ólympíuleikunum í Los Angeles verður keppt í sex þyngdarflokkum í karla og sex í kvennaflokki.
Karlar: -65 kg, -75 kg, -85 kg, -95 kg, -110 kg og +110 kg
Konur: -53 kg, -61 kg, -69 kg, -77 kg, -86 kg og +86 kg
Það er mikið gleðiefni að sjá 33 skráða keppendur frá átta félögum á Frumherjamótið, haustmót LSÍ og Heimsklassa sem fer fram í WorldFit salnum í Kringlunni laugardaginn 19. september.
Mikið hefur verið lagt í umgjörð mótsins en þar má meðal annars nefna:
Allir keppendur fá gjafabréf frá Frumherja
Áhorfendur fá afsláttarmiða í skoðun hjá Frumherja
Frumherjaverðlaunin verða veitt í fyrsta sinn
UPP og Gatorade styðja við endurheimt efstu þriggja keppenda í karla- og kvennaflokki
Verðlaunaafhending fer fram í loks móts um kl. 15:30
Keppendalisti – Konur
Vigtun frá kl. 07:00
Keppni hefst í B flokki kl. 09:00 og í A flokki kl. 11:10
Námskeiðið fer fram eftirfarandi daga: 📚 bókleg fræðsla fimmtudaginn 17. september kl. 17:00 á netinu. 🧑🏫 bóklegt próf föstudaginn 18. september kl. 17:00 í ÍSÍ húsinu, fundarherbergi á 3. hæð. 🏳️ verklegt próf laugardaginn 19. september á Frumherjamótinu, haustmóti LSÍ í WorldFit Kringlunni. Vigtun hefst kl. 07:00 og mótið kl. 09:00.
–> Fjöldi: 10 (biðlisti verður einnig í boði) –> Námskeiðið er frítt. –> Lárus Páll Pálsson ITO Cat. 1 stýrir námskeiðinu. –> Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband á lsi@lsi.is.
Lyftingasamband Íslands og KILROY hafa undirritað samstarfssamning til næstu tveggja ára þar sem KILROY verður ferðasamstarfsaðili sambandsins og annast ferðabókanir í tengslum við landsliðs- og æfingaferðir LSÍ.
Markmið samstarfsins er að byggja upp traust og farsælt langtímasamband þar sem KILROY getur nýtt sér þekkingu á ferðamynstri og þörfum LSÍ til að veita sambandinu markvissa og persónulega þjónustu. Samstarfið mun jafnframt skapa aukið utanumhald um ferðir sambandsins og stuðla að hagkvæmum og öruggum ferðalausnum fyrir LSÍ og landsliðsfólk þess.
Við hjá LSÍ erum mjög ánægð með þetta nýja samstarf við KILROY. Ferðir eru stór og mikilvægur hluti af starfsemi sambandsins og því skiptir miklu máli að hafa traustan samstarfsaðila sem getur veitt okkur góða ráðgjöf og þjónustu. Við hlökkum til að byggja upp samstarfið á komandi árum, segir Arnór Ásgeirsson, framkvæmdastjóri LSÍ.
Samstarf KILROY og LSÍ mun þó ekki eingöngu snúa að ferðatengdri þjónustu. Aðilar hyggjast einnig kanna frekara markaðs- og sýnileikasamstarf samhliða ferðasamstarfinu. Það getur meðal annars falið í sýnileika KILROY í tengslum við ferðir og starfsemi LSÍ, merkingum á fatnaði eða búnaði, samfélagsmiðlum, viðburðum og öðrum verkefnum sem skapa gagnkvæmt virði.
Við hjá KILROY hlökkum til að taka utan um ferðamál LSÍ og nýta okkar reynslu til að gera ferðirnar eins einfaldar og hagkvæmar og hægt er. Okkar markmið er ekki bara að bóka ferðir, heldur að kynnast starfsemi sambandsins, ferðamynstrinu og þörfum landsliðsfólksins þannig að við getum veitt sem besta þjónustu og ráðgjöf hverju sinni. Með því getum við einfaldað utanumhald, fundið hagkvæmar lausnir og tryggt að afreksfólkið sem fer út fyrir Íslands hönd geti einbeitt sér að sínu verkefni, segir Sæmundur Hrafn Linduson, rekstrarstjóri KILROY.
LSÍ og Frumherji taka höndum saman og kynna haustmót LSÍ.
Mótið fer fram laugardaginn 19. september í WorldFit salnum í Kringlunni í umsjá lyftingafélagsins Heimsklassa. Skráning fer fram á Abler.
Áætlað er að hefja vigtun kl. 07:00 og mótið sjálft kl. 09:00.
Sem einn af aðalsamstarfsaðilum LSÍ mun Frumherji sjá til þess að umgjörðin verður sem glæsilegust en þar má nefna;
Allir keppendur fá gjafabréf í skoðun
Áhorfendur fá 15% afsláttarmiða
Frumherji mótsins verður valinn, en þann heiður hlýtur sá keppandi sem að mati dómnefndar á bestu tilþrif mótsins, óvænta innkomu eða sýnir með einum eða öðrum hætti yfirburða íþróttamennsku